ÁLFAR OG TRÖLL
Dagskrá í tali og tónum
flytjendur eru Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir
Safnahúsinu, Húsavík
fimmtudaginn 12. október kl. 20:30
Álfar og tröll er tónleikaröð þar sem Þórhildur Örvarsdóttir söngkona og Helga Kvam píanóleikari leita í sagnaarfinn og flétta saman dagskrá í tali og tónum. Flutt verður tónlist úr ýmsum áttum sem tengist álfum og tröllum og spjallað um þjóðtrú okkar Íslendinga með aðstoð góðra gesta.
Sérstakur gestur á Húsavík verður Huld Hafliðadóttir.
Tónleikarnir verða fimmtudaginn 12. október kl 20:30 í Safnahúsinu á Húsavík.
Aðgangseyrir er kr 3500. Miðar seldir við innganginn.
Viðburðurinn er styrktur af Sóknaráætlun SSNE.
Nánari upplýsingar veita: Helga Kvam helgakvam@gmail.com Þórhildur Örvarsdóttir hilda.orvars@gmail.com