Lilja Árnadóttir mun kynna refilsaumuðu textílverkin, hin skrautlegu tjöld, sem teljast til elstu og merkustu íslensku listaverka sem varðveist hafa og á meðal þeirra verðmætustu eru Marteinsklæðið frá Grenjaðarstað í Aðaldal og Maríuklæðið úr Reykjahlíð í Mývatnssveit.
Lilja Árnadóttir er þjóðfræðingur að mennt og starfaði í áratugi sem sviðstjóri munadeildar hjá Þjóðminjasafni Íslands. Lilja hefur einstaka þekkingu á refilsaumi og handverki íslenskra kvenna á miðöldum og ritstýrði nýútkominni bók Elsu E. Guðjónsson "Með verkum handanna, íslenskur refilsaumur fyrri alda" sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2023.
Á Þjóðminjasafni Íslands stendur nú yfir sýning á öllum fimmtán íslensku refilsaumsklæðunum sem varðveist hafa. Flest eru þau frá miðöldum, nokkur þó yngri, en sex þeirra fengust að láni frá erlendum söfnum, þ. á m. Louvre í París.
Sýningin stendur til 5. maí nk.
Frítt er á viðburðinn á meðan húsrúm leyfir


