14. ágúst á Grenjaðarstað

GRENJAÐARSTAÐUR

14. ÁGÚST KL. 14-16

Það styttist í sumarlok og að því tilefni ætla félagar í DANSHÓPNUM VEFARANUM að kíkja í heimsókn í gamla bæinn á GRENJAÐARSTAÐ og sýna þjóðdansa á milli bæjar og hlöðu. Gestum verður boðið að kemba ull og spinna á halasnældu, auk þess sem gamla búið verður á sínum stað.

Enginn aðgangseyrir og kaffi og kleinur í boði safnsins.

Hlökkum til að sjá sem flest!