Öxarfjarðarhreppur

Öxarfjarðarhreppur var hreppur í Öxarfirði í Norður-Þingeyjarsýslu, austan Jökulsár á Fjöllum. Hreppurinn varð til, ásamt Fjallahreppi, árið 1893 þegar Skinnastaðarhreppi var skipt í tvennt. Náði hinn nýi hreppur frá ósum Sandár í norðri og fram á Hólssand í suðri.

17. febrúar 1991 sameinaðist Presthólahreppur Öxarfjarðarhreppi og Fjallahreppur 1. janúar 1994. Var hreppurinn þá orðinn 2687 km² að flatarmáli. Íbúar voru 330, þar af 139 á Kópaskeri (1. des. 2005). 

Í janúar 2006 samþykktu íbúar Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps sameiningu sveitarfélaganna. Tók hún gildi 10. júní sama ár, í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna 2006, og fékk nýja sveitarfélagið nafnið Norðurþing.

Gjörðabækur

Gjörðabók hreppstjórans í Öxarfjarðarhreppi 1915-1946 (Tilvísun: HérÞing. E-1272/1 Öxarfjarðarhreppur. Gjörðabók hreppstjórans í Öxarfjarðarhreppi 1915-1946.)

Gjörðabók Búnaðarfélags Öxarfjarðarhrepps 1912-1925 (Tilvísun: HérÞing. E-1384/6 Öxarfjarðarhreppur. Gjörðabók Búnaðarfélags Öxarfjarðarhrepps 1912-1925.)

Gjörðabók Búnaðarfélags Öxarfjarðarhrepps 1926-1938 (Tilvísun: HérÞing. E-1384/7 Öxarfjarðarhreppur. Gjörðabók Búnaðarfélags Öxarfjarðarhrepps 1926-1938.)

Forðagæslubækur
Forðagæslubók Öxarfjarðarhrepps 1914-1934 (Tilvísun: HérÞing. E-1262/3 Öxarfjarðarhreppur. Forðagæslubók Öxarfjarðarhrepps 1914-1934.)