Héraðsnefnd Þingeyinga samþykkti formlega á fundi 4. desember 2006 að stofnsett yrði „Menningarmiðstöð Þingeyinga“ Sjálfseignarstofnun á vegum sveitarfélaganna sem yfirtæki eignir og þann rekstur sem fallið hafði undir Safnahúsið á Húsavík og Byggðasafn N-Þingeyinga á Snartarstöðum. Stofnaðilar voru Aðaldælahreppur, Langanesbyggð, Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Þingeyjarsveit.
14. maí 2007 var ritaðu undir stofnskrá Menningarmiðstöðvar Þingeyinga á fundir Héraðsnefndar Þingeyinga í Reynihlíð. Aðalfundur Héraðsnefndar Þingeyinga var haldinn í Gljúfrastofu um miðjan júní það ár og þar var endanlega gengið frá kosningu í stjórn og varastjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga.
Að loknu stjórnarkjöri hverju sinni er valin stjórn Menningarmiðstöðvarinnar og er starfstími hverrar stjórnar því 4 ár. Í Stjórn sitja 7 menn, formaður Héraðsnefndar Þingeyinga sem formaður, 3 kosnir af héraðsnefnd Þingeyinga úr hópi nefndarinnar og 3 aðrir sem ekki eiga sæti í Héraðsnefnd. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir.
Með stofnun Menningarmiðstöðvar Þingeyinga varð til Byggðasafn Þingeyinga sem skiptist í eftirfarandi deildir: Byggðasafn Suður-Þingeyinga Grenjaðarstað, Byggaðsafn Suður-Þingeyinga Safnahúsinu á Húsavík, Byggðasafn Suður-Þingeyinga Sjóminjasafn, Byggðasafn Norður-Þingeyinga v/Snartarstaði.
Fyrsti forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga var Guðni Halldórsson sem verið hafði forstöðumaður Safnahússins á Húsavík frá árinu 1992. Eftirfarandi aðilar hafa gegnt starfi forstöðumanns MMÞ:
2006 - 2008 Guðni Halldórsson
2008 - 2009 Sigurjón Baldur Hafsteinsson
2009 - 2011 Sigrún Kristjánsdóttir
2011 - 2018 Sif Jóhannesdóttir
2018 - 2022 Jan Aksel Klitgaard
2022 - Sigríður Örvarsdóttir
|