Framsýn gefur MMÞ hljóðkerfi |
Tuesday, 08 May 2018 10:15 |
Framsýn gefur Menningarmiðstöðvar Þingeyinga hljóðkerfi
Fulltrúar Framsýnar komu við hjá starfsmönnum MMÞ fyrir helgina og færðu miðstöðinni hljóðkerfi að gjöf. Um er að ræða vandað kerfi að Bose gerð. Starfsmenn MMÞ þakka alveg sérstaklega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun koma að góðum notum við ýmsa viðburði á vegum MMÞ.

Það var Snorri G. Sigurðsson, héraðsskjalavörður sem tók formlega við gjöfinni. Með honum á myndinni er formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson.
|