Föstudagur, 13. maí 2022 11:41 |
Alþjóðlegi safnadagurinn

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn ár hvert þann 18. maí af International Council of Museums (ICOM). Þátttakendur eru um 37.000 söfn í 158 löndum. Söfn um allan heim skipuleggja dagskrá þann dag, helgina eða jafnvel vikuna alla sem 18. maí ber upp á og hefur það verið gert öll árin síðan 1977. Sjá nánar á heimasíðu FÍSOS.
|