Takmarkanir í Safnahúsinu |
Laugardagur, 12. febrúar 2022 17:08 |
Takmarkanir í Safnahúsinu
Í Safnahúsinu á Húsavík gilda eftirfarandi takmarkanir frá 12. febrúar þegar ný reglugerð tekur gildi, sem eiga jafnframt við önnur söfn á Íslandi.
Hámarksfjöldi í söfnum nú 200 manns í hverju sóttvarnarými að hámarki 500 manns.
- Söfn mega taka á móti 200 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum. Athugið að safnaráð fékk undanþágu frá reglugerð nr. 177/2022 frá heilbrigðisráðuneytinu dagsetta 11. febrúar fyrir hönd safna á landinu, þannig að fyrri hámarkstakmarkanir gilda, 500 manns með ákveðnum skilyrðum.
- Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns.Athugið að þetta á við hefðbundna starfsemi safnsins, ekki viðburði á vegum safnsins eða annarra.
- Eins metra fjarlægðarregla er í gildi.
- Grímuskylda er í söfnum þar sem ekki er hægt að viðhalda eins metra fjarlægðarreglu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.
Við tryggjum aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
Sinnum þrifum og sótthreinsum yfirborð sem margir snerta eins oft og unnt er.
Minnum almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum.
|