Takmarkanir í Safnahúsinu |
Friday, 28 January 2022 15:45 |
Takmarkanir í Safnahúsinu
Í Safnahúsinu á Húsavík gilda eftirfarandi takmarkanir frá 29. janúar, sem eiga jafnframt við önnur söfn á Íslandi.
- Söfn mega taka á móti 100 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum.
- Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns. Athugið að þetta á við hefðbundna starfsemi safnsins, ekki viðburði á vegum safnsins eða annarra.
- Eins metra fjarlægðarregla er í gildi.
- Grímuskylda er í söfnum þar sem ekki er hægt að viðhalda eins metra fjarlægðarreglu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.
Við tryggjum aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
Sinnum þrifum og sótthreinsum yfirborð sem margir snerta eins oft og unnt er.
Minnum almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum.
|