Mánudagur, 05. júlí 2021 11:55 |
Ársreikningur 2020
Ársreikningur Menningarmiðstöðvar Þingeyinga 2020 er nú aðgengilegur á heimasíðunni. Hægt er að nálgast hann undir flipanum "MMÞ" og þar er valið "Ársreikningar og verkefnaáætlanir".
Einnig er hægt að smella hér. |
|
Mánudagur, 31. maí 2021 11:03 |
Grenjaðarstaður
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna mun byggðasafnið að Grenjaðarstað ekki opna 1.júní eins og áætlað var. Stefnt er á að opna eins fljótt og auðið er.
Menningarmiðstöð Þingeyinga biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. |
Miðvikudagur, 05. maí 2021 00:00 |
Safni 2021
41.árgangur af Safna kom út. Safni er fréttablað MMÞ þar sem hverju starfsári er gert skil í máli og myndum. Safni er ókeypis hefur komið óslitið út síðan 1981. Hægt er að skoða Safna með því að smella á forsíðumyndina hér fyrir neðan.
 |
Smelltu á myndina til að skoða Safna |
Ef þú hefu áhuga á að fá sent prentað eintak hafðu þá endilega samband í síma 464-1860 eða sendu okkur tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|
Þriðjudagur, 27. apríl 2021 12:59 |
Styrkir úr safnasjóði

Menningarmiðstöð Þingeyinga hlaut styrk úr aðalúthlutun safnasjóðs fyrir árið 2021 til að sinna fjórum verkefnum. 400.000 kr voru veittar til undirbúningsvinnu á grisjun bátasafns MMÞ og 800.000 kr voru veittar til áframhaldandi vinnu við skráningu safngripa í geymslu Safnahússins. Einnig hlutum við styrk upp á 1.200.000 kr til þess að vinna nýjan leiðsagnarbækling fyrir Grenjaðarstað sem mun nýtast gestum bæjarins. Að lokum úthlutaði safnasjóður 1.700.000 kr til vinnu við nýja sérsýningu sem ber vinnuheitið “Laxárdeilan – nýr tónn í náttúruvernd á Íslandi.” Það er Sigurlaug Dagsdóttir sem stendur að baki sýningunni og verður hún sett upp í Safnahúsinu á Húsavík í haust.
|
|
|
|
|
Síða 9 af 81 |