Föstudagur, 03. desember 2010 13:40 |
Aðventukvöld verður á Grenjaðarstað föstudaginn 3.desember kl.21:00. Krikjukórinn syngur undir stjórn Jaan Alavere. Kristján Halldórsson syngur einsöng. Nemendur Tónlistarskólans leika á hljóðfæri.
Ræðumaður kvöldsins verður Sigrún Kristjánsdóttir forstöðumaður Safnahússins. Kórinn syngur eitt lag inni í Grenjaðarstað.
Á eftir býður kirkjukórinn til kaffiveislu í hlöðunni. |
|
Þriðjudagur, 23. nóvember 2010 12:17 |
Þetta vilja börnin sjá!
- Upplestrardagskrá í tengslum við sýninguna -
Í tilefni af sýningunni "Þetta vilja börnin sjá!" stendur Safnahúsið fyrir upplestrarstundum fyrir börn, á mánudags- og þriðjudagsmorgnum næstu vikur. Stundirnar hefjast klukkan 10:00, lesið verður í u.þ.b. 20 mín. í hvert sinn. Lesið verður úr nýútkomnum barnabókum í bland við gamlar og góðar.
|
Nánar...
|
Mánudagur, 22. nóvember 2010 16:35 |
Nýlega bárust Ljósmyndasafninu sex ljósmyndir sem voru teknar á Grenjaðarstað um 1940. Myndirnar eru af börnum við leik í kringum Grenjaðarstað. Gefandi eru Soffía Margrét Þorgrímsdóttir, en hún fæddist á Grenjaðarstað, og sonur hennar Hermann Þráinsson. Menningarmiðstöð Þingeyinga vill þakka þeim kærlega fyrir þessa góðu gjöf.
|
Nánar...
|
Mánudagur, 15. nóvember 2010 16:13 |
Á undanförnum árum hefur mikil vinna verið lögð í að skrá þær myndir sem hafa borist safninu í gagnagrunn. Margra ára grunnvinna er þó eftir en vinnu við safn sem þetta lýkur raunar aldrei. Á hluta af þeim myndum sem berast safninu er ekki vitað hver er. Myndir af einstaklingum sem enginn kann deili á hafa fremur lítið gildi. Þess vegna mun Safnahúsið birta reglulega myndir á þessum vef þar sem ekki er vitað t.d. hver er á myndinni, hver tók myndinna, hvaða ár hún var tekin o.s.frv. með þeirri von að safnið fái ábendingar sem leiða til þess að hægt sé að fylla út í þær eyður sem vantar.
Óþekktu myndir er hægt að nálgast hér. |
|
|
|
|
Síða 80 af 82 |