Laugardagur, 21. ágúst 2010 08:49 |
Á tímabilinu 21. - 29.ágúst 2010 mun listamaðurinn Þorri Hringsson sýna málverk í sýningarsalnum í Safnahúsinu.
|
Nánar...
|
|
Fréttir
|
Þriðjudagur, 08. júní 2010 14:25 |
Í Safnahúsinu á Húsavík hafa miklar breytingar átt sér stað undanfarin misseri og nú í júní munu opna þar þrjár nýjar sýningar. Sett hefur verið upp ný fastasýning á miðhæðinni sem heitir Mannlíf og náttúra - 100 ár í Þingeyjarsýslum og verður hún formlega opnuð þann 12. júní n.k. Á sama tíma verður opnuð sýning um Samvinnuhreyfinguna á Íslandi en hún er einnig staðsett á miðhæð Safnahússins. Ljósmyndasýning sumarsins verður einnig opnuð á neðstu hæðinni en hún er úr smiðju Silla, Sigurðar Péturs Björnssonar (1917 - 2007) sem var afkastamikill ljósmyndari. Á sýningunni eru margar athyglisverðar myndir af mannlífinu á Húsavík og nágrenni. Í listasalnum á þriðju hæðinni sýnir svo hollenski listamaðurinn Joris Rademaker málverk og skúlptúra.
Stutt heimildarmynd um Joris og kartöfluverk hans
Dagana 13. - 20. júní verður almenningi boðin ókeypis aðgangur að sýningunum. |
Fréttir
|
Föstudagur, 30. apríl 2010 11:15 |
Við tengslum við opnun nýrrar sýningar, Mannlíf og náttúra - 100 ár í Þingeyjarsýslum, þann 12. júní n.k. verður sett upp sýning á úrvali ljósmynda Sigurðar Péturs Björnssonar fyrrverandi útibússtjóra Landsbankans á Húsavík.
|
Nánar...
|
|
|
|
Síða 72 af 72 |