Nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga |
Friday, 08 June 2018 14:29 |
Nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga
Jan Aksel Klitgaard hefur verið ráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Jan er þjóðfræðingur, en hann lauk nýverið MA námi í norrænni trú í Háskóla Íslands. Síðastliðin 20 ár hefur Jan verið búsettur í Þingeyjarsýslu, hér hefur hann m.a. starfað sem garðyrkjustjóri Norðurþings og framkvæmdastjóri Hvalasafnsins á Húsavík. Jan tekur við starfinu í lok ágúst af Sif Jóhannesdóttur. |
|